top of page
Search

Untitled

Yndisleg vinkona heiðruð fyrir að reynast fólki vel og gefa af öllu hjarta af sér 😘



Maður er svo gjarn á að hugsa að maður sé ekki nógu góður“

Skagakonan Ásdís

Líndal hlaut nú í nóvember viðurkenningu fyrir íþróttanudd á verðlaunahátíðinni Family first awards sem haldin var á Titanic hótelinu í Belfast á Norður-Írlandi. Ásdís var ásamt fimm kírópraktorum tilnefnd í flokki þerapista. Alls voru viðurkenningar veittar í tólf flokkum en hátíðin sneri að því að verðlauna fólk í framlínustörfum (e. keyworkers) í heilbrigðiskerfinu annars vegar og menntakerfinu hins vegar.



Ásdís er fædd og uppalin á Akranesi, dóttir Kristrúnar Líndal og Þjóðbjörns Hannessonar. Hún flutti til Danmerkur um tvítugt og hefur búið erlendis allar götur síðan, í Kaupmannahöfn, London og Belfast. Ásdís segir að planið hafi verið að búa í eitt ár í Belfast, þar sem eiginmaður hennar, Sigurður Sævarsson, þurfti að dvelja vegna vinnu. Þeim líkaði hins vegar svo vel að þau eru þar enn 19 árum síðar og hafa alið þar upp börnin sín þrjú: Snædísi Björk, Daníel Þór og Ísak Má. „Við ákváðum að ala upp börnin okkar í Belfast og vera þar þar til þau myndu ljúka sinni skólagöngu. Næsta sumar mun yngri sonur okkar svo klára sinn skóla þar og þá veit enginn hvað gerist,“ segir Ásdís.




Ásdís og Sigurður hafa búið í Belfast í 19 ár.


Næm í fingrunum

Ásdís er nuddari og Pílates kennari í Belfast. Hún er með stofu heima hjá sér þar sem hún tekur á móti viðskiptavinum og kennir Pílates í gegnum fjarfundarbúnað. Nuddarann lærði Ásdís þegar hún bjó í Danmörku á tíunda áratugnum, þá var hún í íþróttaháskóla í Kaupmannahöfn og ákvað að læra nudd meðfram því. „Ég er mjög tilfinninganæm í fingrunum svo að nuddið átti vel við mig. Í náminu var farið mjög djúpt í líffærafræði (e. anatomy) og lífeðlisfræði (e. physiology) og ég hafði mikinn áhuga á hvoru tveggja,“ segir Ásdís en bætir við að í skóla hafi hún ekki alltaf átt auðvelt með að læra og fannst erfitt að einbeita sér. En hvar kviknaði áhugi hennar á nuddi? „Þegar ég var 17 ára var ég í eitt ár í lýðháskóla í Svíþjóð og þar hitti ég stelpu sem var nuddari. Hún kynnti mig fyrir sænsku nuddi sem mér fannst voða spennandi. Svo þegar ég sá þetta nám auglýst í Danmörku, í klassísku- og íþróttanuddi ákvað ég að slá til og skrá mig. Eftir að ég lauk því námi notaði ég vitneskjuna aðallega til að meðhöndla vini og vandamenn og börnin mín þegar þau voru aum, með vaxtarverki og svona,“ segir Ásdís sem byrjaði ekki að vinna sem nuddari fyrr en nokkrum árum eftir að hún flutti til Belfast. „Við flytjum til Belfast árið 2004 og ég er þessi ár að mestu heimavinnandi, þegar krakkarnir voru svona litlir. Svo þegar yngsta barnið okkar var um fimm ára þá fer ég aðeins að skoða mig um og leita aftur út á vinnumarkaðinn,“ segir Ásdís en hún á erfitt með að sitja auðum höndum og á meðan hún var ekki útivinnandi las hún sér mikið til um nudd, eins og um álagspunkta (e. trigger point), og sat ýmis námskeið.



Ásdís lærði svo markþjálfun og NLP (e. neuro-linguistic programming) en það er aðferð sem fær fólk til að skoða hvernig það hugsar og hvernig þær hugsanir ákvarða hegðun þess. „Það var alveg frábært og er besta fjárfesting sem ég hef gert fyrir sjálfa mig og fjölskylduna, það að geta séð lífið á öðruvísi hátt og hafa verkfæri sem geta bjargað sjálfum sér frá því að koðna niður.“



Hægt og rólega hefur Ásdís svo bætt við sig þekkingu meðfram vinnu og meðal annars tekið námskeið í þurrnálastungum. „Ég þarf alltaf að vera að gera eitthvað og ef mér byrjar að leiðast þá tek ég námskeið eða kúrsa.“




Heimafyrir er Ásdís með herbergi þar sem hún bæði nuddar

sína kúnna og kennir Pílates í gegnum fjarfundarbúnað.


Nudd er leynilögguleikur

Ásdís fékk vinnu á heilsuklíník í Belfast þegar hún leitaði þar út á vinnumarkaðinn. Þar starfaði hún sem markþjálfi og bauð einnig upp á NLP. Síðar fór hún að nudda á þessari sömu stofu hvar hún svo var í mörg ár. Hún segir starf nuddara vera eins og að vera í leynilögguleik. „Þetta snýst um að finna vandamálið, af hverju það stafar og hvaðan verkirnir koma. Ég hlusta með höndunum þannig ég er aldrei með fyrirfram ákveðið prógram í mínum tímum. Ég nota hendurnar til þess að finna hvar ég þarf að vinna, þannig að nudd hjá mér er ekki staðlað. Ég vinn til dæmis mikið með álagspunkta og svo er ég dugleg að lesa mér til um nudd og mannslíkamann því mér finnst allt honum tengt alveg svakalega spennandi,“ segir Ásdís.



Segja má að vegna þess hve áfjáð Ásdís var í að lesa sér til um og fræðast meira hafi starfið hennar tekið heljarinnar stökk. „Ég fór að vinna aðeins heima og taka á móti kúnnum þar. Ég er þar með ákveðinn kúnnahóp sem er svo duglegur að benda öðru fólki á mig svo ég hef ekki þurft að auglýsa mig enn. Svo var það í eitt sinn að það kom til mín kona sem var systir fastakúnna hjá mér. Hún er læknir og spurði mig hvort ég hefði áhuga á að vinna með sér,“ segir Ásdís en sú vinna fólst í því að þjónusta tónlistarmenn, hljómsveitir og starfsfólk þeirra, þegar þeir komu til að halda tónleika í Belfast.



Nafnspjaldið hékk uppi á vegg í sjö ár

„Þetta breytti dínamíkinni úr því að vinna á klíník í að þurfa meira að fara að spá í því hvað ég var að gera,“ segir Ásdís en fyrsta giggið sem hún fékk var að taka á móti föruneyti tónlistarmannsins Michael Bublé. Starfið fólst í því að nudda hans starfsfólk og sem var allt mjög ánægt með vinnu Ásdísar. „Svo fékk ég fleiri verkefni út frá þessari konu og ég fékk alltaf voðalega góð ummæli frá öllum. Og það er rosalega gott fyrir mann þegar maður vinnur einn.“



Það var svo sjö árum síðar sem Ásdís fékk tölvupóst frá verkefnastjóra tónleikaferðar Michael Bublé. Þá var Bublé aftur að koma til Írlands að halda tónleika og vildi verkefnastjórinn athuga hvort Ásdís gæti verið með þeim aftur, í kringum tónleikana. „Þá sagði hann mér að hann hefði verið með nafnspjaldið mitt uppi á vegg hjá sér í sjö ár, frá því ég var með þeim síðast,“ segir Ásdís sem fór svo niður til Dublin þar sem hún hitti þennan hóp aftur. „Það var upplifun skal ég segja þér. Þegar ég kom til þeirra tóku allir á móti mér og knúsuðu mig eins og þau hefðu alltaf þekkt mig,“ segir Ásdís en hún vann svo með þeim m.a. á Írlandi, í Danmörku, Englandi og Svíþjóð. „Þetta er rosa upplifun, þegar maður vinnur með sjálfum sér að fá viðurkenningu fyrir því sem maður er að gera, frá fólki.“ Ásdís fékk svo enn stærri viðurkenningu þegar hún vann Family first awards á Norður-Írlandi í flokki þerapista nú í nóvember.




Ásdís fylgdi tónlistarmanninum Michael Bublé og föruneyti hans m.a. til Danmerkur, Englands og Svíþjóðar. Hér er vinnuaðstaða hennar í Royal Arena í Kaupmannahöfn.

Verðlaunahátíðin - Family first awards

„Þetta er í raun viðurkenning fyrir það sem maður gerir og hvernig maður gerir það, hvernig maður nálgast kúnnann og leggur allt í sölurnar til þess að mæta honum og þjónusta. Þarna var verið að verðlauna fólk sem er að vinna fyrir fólk,“ segir Ásdís.



Óskað var eftir tilnefningum um framúrskarandi fólk í framlínustörfum (e. keyworkers) í heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu. Veittar voru viðurkenningar í tólf flokkum, m.a. í flokki hjúkrunarfræðinga, tannlækna og heilsugæslustarfsmanna. Þerapistar, nuddarar og kírópraktorar voru undir sama flokki þar sem Ásdís var tilnefnd ásamt fimm kírópraktorum. „Og svo bara vann ég,“ segir Ásdís og bætir við eftir stutta kúnstpásu. „Ég vissi það ekki fyrirfram að ég myndi vinna heldur var nafnið mitt bara lesið upp á sviðinu og ég kölluð upp til að taka á móti verðlaununum. Ég fór ægilega mikið hjá mér og var ótrúlega hissa!“ segir Ásdís en þarna höfðu margir hennar kúnna gefið sér tíma til að senda inn umsögn um hana sem svo varð til þess að hún hreppti verðlaunin.




Ásdís hlaut viðurkenningu fyrir íþróttanudd á verðlaunahátíðinni Family first awards í flokki þerapista.


Að fara auka mílu fyrir mína kúnna

„Mér fannst þetta frekar frábært því ég hélt að ég myndi ekki vinna. En ég fékk svo áframsend sum af þeim skilaboðum þar sem fólk var að tilnefna mig og ég hálfklökknaði bara yfir því hvað fólk var ánægt með mína vinnu. Og að það taki sér tíma til þess að skrifa eitthvað svona fallegt um mig og láta vita að það sé ánægt, það er ekki sjálfgefið. Þessi viðurkenning þýðir kannski ekki neitt fyrir neinn nema mig sjálfa,“ segir Ásdís og bætir við: „Ég var tilnefnd fyrir að vera með góða nálgun á mína kúnna, fyrir að hjálpa og fara þessa auka mílu fyrir mína kúnna. Það sem gerir það sérstaklega gaman að hafa unnið verðlaunin er að maður er svo gjarn á að hugsa að maður sé ekki nógu góður, það séu alltaf aðrir betri en maður sjálfur, klárari og hafa lært meira. En það er ekki þannig. Fólk hefur bara lært öðruvísi og allir gera mismunandi hluti. Og það er svo mikilvægt fyrir krakka að skilja að það sem maður hefur áhuga á getur maður orðið góður í, alveg sama hvað það er og þá þarf maður að leita þangað og vinna að því.“



„Annars á maður í þeirri hættu á að sitja eftir seinna í lífinu og hugsa „af hverju gerði ég þetta ekki“ og „af hverju gat ég þetta ekki en þessi gat þetta?“ En þetta hefur ekkert með það að gera. Þú gast þetta alveg líka en þú bara ákvaðst að þú gætir þetta ekki.“



Þá er ég hætt

Ásdís segir lykilinn að farsæld sinni í starfi vera sá að hún gefur fyrsta kúnna dagsins sömu meðferð og þeim síðasta. „Ég tek ekki mjög marga kúnna á dag af því ég bara get það ekki. Djúpnuddið er svakalega slítandi fyrir liðina af því maður er alltaf að ýta og ég nota ekki olnboga eða aðra líkamsparta til að nudda með því ég þarf að nota fingurna til að finna hvar ég á að vinna. Ég er þess vegna mjög sterk í höndunum og fingrunum en þessu fylgir líka ákveðin tækni þar sem maður notar þungann í sínum eigin líkama til þess að ná að nudda dýpra. En ég vil líka læra aðrar aðferðir til þess að geta losað um spennu með öðrum hætti, og ég á von á því að ég sitji fleiri námskeið í náinni framtíð til að auka þekkingu mína,“ segir Ásdís og bætir að lokum við. „En þegar ég kem til með að finna þá tilfinningu að mér leiðist vinnan mín, þá er ég hætt. Af því það er ekki sanngjarnt fyrir mína kúnna að ég gefi þeim ekki allt sem þeir þurfa – og fyrir það fékk ég þessa viðurkenningu.


ree

 
 
 

Comments


  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

©2021 by Sjalfstraust.is. Proudly created with Wix.com

bottom of page